Adidas Evo SL er léttur hlaupaskór með góðri dempun sem ræður við nánast hvað sem er, allt frá léttum hlaupum til langra hlaupa og æfinga – þú getur jafnvel notað hann á keppnisdegi fyrir allar vegalengdir frá 5 km upp í hálft maraþon (hugsanlega jafnvel maraþon).
Adidas Evo SL notar Lightstrike dempun frá Adidas – sem einnig má finna í „supershoes“ þar á meðal Pro Evo og Adios Pro 4, sem hafa verið vinsælustu hlaupaskórnir hjá atvinnuhlaupurum.
Evo SL er ekki með carbon plötu, en hann er með litla plastplötu í miðjunni fyrir stöðugleika.
Hann er með Continental gúmmísóla með góðu gripi og efri hlutinn andar vel.
Hann hentar hlaupurum á öllum getustigum.
Þeir eru þægilegir á rólegum hraða og eru hraðir og móttækilegir þegar þú eykur hraða, sem gerir þá að einstaklega fjölhæfum alhliða skóm.
Mælingar á orkunýtingu ( energy return ) setja þessa skó í efsta flokk með mörgum “ supershoes „.
Einstaklega léttur – SL stendur fyrir Super Light.
Ef þú vilt skó með mikla dempun og spyrnu, fjölhæfur, góða endingu og sem er mjög skemmtilegur að hlaupa í með miklum krafti – þá er Evo SL tilvalinn fyrir þig!



























